Sunday, February 11, 2007

Flutt á vit ADLS draumsins

Nú er loksins farið að hylla undir það að bloggsíðan mín gangi í endurnýjaða lífdaga. Ef guð og Jói símvirki í Vík lofa, mun ég nefnilega fá ADLS tengingu eftir helgina, Skjá einn og fullt af öðru fíneríi. Til þess að fá allt þetta fínerí þurfti ég náttúrulega að yfirgefa hið notalega hreiður Syðri-Steinsmýri og flytja mig aðeins nær þéttbýlismenningunni. Ég er semsagt flutt aftur (í bili) í hið líflega þorp Kirkjubæjarklaustur, sem státar af kaffihúsi, hóteli, dýrustu matvöruverslun heims, elliheimili, heilsugæslustöð, bókasafni, grunnskóla, hreppsskrifstofu, sjoppu og sennilega ca 35 húsum, sem flest eru vandlega falin bak við ofvaxinn trjágróður garða sinna. Að vísu er kaffihúsið lokað á veturnar, sjoppunni skellt í lás klukkan 8 á kvöldin, og nánast ómögulegt að hitta á hreppsskrifsstofuna opna. En hverjum er ekki sama um það, hér er ADLS í boði og hægt að liggja á netinu alla daga, og svo góna á Skjáinn, óseiseijá.....

Það er kannski eins gott að nettengingarmál mín komist í lag fljótlega, því að síðustu helgi andaðist gsm sími minn saddur lífdaga. Hann var af gerðinni nokia 5110 og hafði þjónað eiganda sínum dyggilega í næstum áratug. Dánarorðsök hans var gin og tónik, sem hann mun hafa neytt síðla kvölds á þokukenndum bar einhverntíma eftir þorrablót þjóðfræðinema. Vaskur meðlimur flugbjörgunarsveitarinnar endurlífgaði hann reyndar að hluta til strax næsta dag með eldsspýtnaþræðingu, svo að nú má með harðfylgi hringja úr honum í öll símanúmer sem ekki innhalda 0. Sem þýðir það að ég mun ekki hringja í neinn sem hefur 0 í símanúmerinu sínu fyrr en ég kemst í bæinn með flotta, fína en læsta gsm símann sem ég keypti út í henni Ameríku í fyrra.

Þessa dagana er ég að kljást við að semja ráðsstefnuabstract á ensku, eftir því sem tími gefst til á milli hótelstarfa og ritgerðaskrifa. Þessi abstractsskrif mín eru reyndar soldið skondin í ljósi þess að ég er eiginlega ekki búin að ákveða hvort að ég ætla eða hreinlega kemst á ráðstefnuna, sem er víst á næsta ári (hvar var hún annars aftur og hvenær?). Og hvað þá heldur ákveða hvað ég ætla að reyna að tala um..... Svo að ég neyðist víst til að hanna kafloðinn abstract sem gerir mér kleift að tala um næstum því hvað sem er þegar á hólminn er komið. En þetta gengur bara hreint ekki vel, því að af einhverri ástæðu hefur enskunni minni hrakað svo mikið síðustu mánuðina að orðin 200 líta hreinlega út fyrir að hafa verið skrifuð af 5 ára barni. Og í ferlinum hef ég rekið mig á mjög alvarlega orðabókavankannta; þær gefa þér upp hrúgu af einskis nýtum skammstöfunum en þegja svo þunnu hljóði um það hvernig eigi að skammstafa orðið t.d. á ensku. Svo að ég auglýsi hér með eftir þeirri skammstöfun í von um að einhverjir hafi ekki gefið lestur þessarar bloggsíðu upp á bátinn þrátt fyrir hinar löngu og þrúgandi þagnir.......

Annars er það helst að frétta hér úr þessari sveit að um sig hefur gripið mikið framkvæmdarfár sem lýsir sér í því að hótel spretta hér upp eins og gorkúlur um allar sveitir. Sem er náttúrulega fín mál (fleiri barir í þessa sveit, já takk), en kallar á nokkrar vangaveltur um það hverjir eigi eiginlega að starfa á öllum þessum hótelum. Ég hef eiginlega minni áhyggjur af því hverjir eigi að gista þau, hér er jú hægt að selja hvert einasta gistirými 10 sinnum hvern dag frá byrjun júní til ágústloka. En þetta eru allt saman bara sumarstörf sem í flestum venjulegum bæjarfélögum eru mönnuð með skólakrökkum í sumarfríum. Og þetta er nefnilega samfélagshópur sem er eiginlega bara ekki lengur til í þessari sveit. Bekkirnir í grunnskólanum eru komnir niður í 3-5 nemendur og fátt sem bendir til fjölgunar í fyrirsjáanlegri framtíð. Svo segir að minnsta kosti gamall maður hér í sveit sem tilkynnti mér áhyggjufullur um daginn að í öllum hreppnum væru einungis 18 konur í barneign. Og samt taldi hann mig allra náðugsamlegast með, þótt að ég væri nú hálfgerð geldkona!......(Þýðing: Búin að pipra lengi, alveg að komast í kaskó og ekki líkleg til stórafreka á fjölgunarsviðinu í millitíðinni). En ég held nú samt að þetta sé eitthvað vantalið hjá honum, þetta getur bara ekki verið svona slæmt.

3 Comments:

At 6:54 AM, Anonymous Anonymous said...

til dæmis = for example = e.g. (e.g. er latnest fyrir exempli gratia)
Maður er ótrúlega klár þegar maður er með aðgang að ordabok.is ;o)
kv
Steinunn

 
At 2:21 PM, Blogger Juliana said...

takk Steinunn, þú átt greinilega miklu betri orðabók heldur en ég. En að komast í kaskó þýðir víst að vera öruggur dráttur sökum elli eggjastokka. En ég sel þessa skýringu samt ekki dýrara en ég keypti hana.

 
At 3:37 PM, Anonymous Anonymous said...

neiiiiii! ég trúi ekki að elsku síminn hafi lent í þessu hræðilega slysi! blessuð sé minning hans, ég á erfitt með að sjá þig fyrir mér með einhvern lítinn og asnalegan síma. Eini ljósi punkturinn er að hann hefur væntanlega verið ánægður að fá að synda í gini og tónik síðasta augnablikið. Vonandi ekki með lime.
Nú er helgin liðin og ég vona að þú sért komin með ADSL-ið ógurlega og farir að dæla bloggum hingað inn. Koma svo!

 

Post a Comment

<< Home